28) Fljúgum hærra - Lolla og Linda. Sveitavargurinn og Gaflarinn

Hverjar erum við? Hvaðan komum við, hvert erum við að fara og af hverju erum við eitthvað að tjá okkur um konur í tónlist og ljósmyndun?Vegna fjölda áskorana (ekki bara út af því að Linda var búin að vera á safnamannaskralli á austfjörðum og ekki tilbúin með næsta handrit) þá ætlum við að segja aðeins frá okkur sjálfum. Það koma við sögu hópferðir á þungarokkstónleika, mixteip, gæruvesti, tjaldútilegur á Snæfellsnes og Tom Jones. 

Om Podcasten

Gömlu vinkonurnar Lolla og Linda setjast niður og fræða hvor aðra um merkilegar konur. Lolla sem er djúpvitur tónlistargúrú segir frá framúrskarandi konum úr tónlistarheiminum. Safnakerlan Linda dregur hins vegar fram sögur af spennandi konum í ljósmyndun. Hlaðavarpið þeytir hlustandanum inn í heim kvenna sem vilja fljúga hærra… samt ekki á galdrakústi.- - - - - - - - - - - Hér er svo Facebook síðan okkar þar sem hægt er að finna playlista, myndir og ýmislegt annað tengt podcastin. https://www.facebook.com/fljugumhaerrapodcast