37) Fljúgum hærra - Jóla Jóla! - Jólatónlist

Þessi þáttur er með aðeins óhefðbundnu sniði þar sem það eru jú að koma jól. Hér tökum við fyrir nokkur klassísk jólalög, segjum aðeins frá þeim og heyrum útvaldar konur syngja þau.Já hver hefði trúað því að sumir færu að grúska í jólalögum alveg af sjálfsdáðum og án þess að vera búin að sturta í sig kakó og Stroh 80% allan daginn?

Om Podcasten

Gömlu vinkonurnar Lolla og Linda setjast niður og fræða hvor aðra um merkilegar konur. Lolla sem er djúpvitur tónlistargúrú segir frá framúrskarandi konum úr tónlistarheiminum. Safnakerlan Linda dregur hins vegar fram sögur af spennandi konum í ljósmyndun. Hlaðavarpið þeytir hlustandanum inn í heim kvenna sem vilja fljúga hærra… samt ekki á galdrakústi.- - - - - - - - - - - Hér er svo Facebook síðan okkar þar sem hægt er að finna playlista, myndir og ýmislegt annað tengt podcastin. https://www.facebook.com/fljugumhaerrapodcast