38) Fljúgum hærra - Zofia Rydet

Pólski ljósmyndarinn Zofia Rydet varð  frægust fyrir þá brjálæðislegu hugmynd sem hún fékk árið 1978; að ljósmynda öll heimili í landinu. Þá var hún 67 ára gömul en setti það alls ekki fyrir sig. Hún myndaði í meira en hundrað þorpum og skildi eftir sig stórkostlegt myndasafn sem vottar um hverfandi heim.

Om Podcasten

Gömlu vinkonurnar Lolla og Linda setjast niður og fræða hvor aðra um merkilegar konur. Lolla sem er djúpvitur tónlistargúrú segir frá framúrskarandi konum úr tónlistarheiminum. Safnakerlan Linda dregur hins vegar fram sögur af spennandi konum í ljósmyndun. Hlaðavarpið þeytir hlustandanum inn í heim kvenna sem vilja fljúga hærra… samt ekki á galdrakústi.- - - - - - - - - - - Hér er svo Facebook síðan okkar þar sem hægt er að finna playlista, myndir og ýmislegt annað tengt podcastin. https://www.facebook.com/fljugumhaerrapodcast