THE FREEZER MOM (ÁSKRIFT)

24 mars árið 2015 byrjaði ósköp venjulega fyrir útburðar teymi Detroit borgar. Verkefni dagsins var að bera út leigjanda í litlu húsi. Leigjandinn, sem hét Mitchelle Blair og bjó þarna með börnunum sínum fjórum, skuldaði rúma 2000 dollara í leigu og hafði ekki brugðist við neinum bréfum eða viðvörunum um útburð. Þegar teymið kom að húsinu og bönkuðu var enginn heima. Þau opnuðu því dyrnar og gengu inn. Húsið var viðbjóðslegt, blettir og skítur ásamt drasli þöktu gólfið - Sem var þó ekkert miðað við þau sem þau áttu eftir að finna í frystikistu inní stofu. Á svipstundu, varð mál "The Freezer Mom" eitt það umtalaðasta í Bandaríkjanna. Þessi þáttur er í áskrift. Þú getur hlustað á hann í heild sinni með því að skrá þig í ILLVERK ÁSKRIFT - Við skráningu færð þú aðgang að yfir 150 aukaþáttum, fimm nýja í hverjum mánuði og þessa fríu vikulegu án auglýsinga. Kynntu þér endilega málið inni á WWW.ILLVERK.IS

Om Podcasten

Hlaðvarpið sem hefur svalað forvitni íslendinga um sannsöguleg sakamál síðan 2019. • www.illverk.is • #illverkpodcast • illverk@illverk.is