Húðtóna heyrnatól frá Kardashian og Himnasendingar

Við förum um víða völl í þættinum, allt frá húðtóna heyrnatólum og að himnum. Kim Kardashian og Beats (Apple) þróa húðtónalituð heyrnatól frá Beats Fit Pro. Aha er víst byrjað að bjóða upp á drónaheimsendingar undir nafninu "Himnasending" en bara þegar veður leyfir. John Deere traktorar geta keyrt Doom, þrátt fyrir svæsið burn-in á skjánum. Android 13 er komið út, aðeins á undan áætlun. Samsung Galaxy Watch 5 er komið með dóma og þeir eru ekkert spes. En Samsung hittir í mark með 55" tölvuleikjaskjá sem er gersamlega sturlaður. Þessi þáttur er í boði Macland.  Stjórnendur eru Atli Stefán, Bjarni Ben og Elmar Torfa.

Om Podcasten

Tæknivarpið er eitt elsta virka hlaðvarp Íslands og fjallar um tæknifréttir vikunnar. Stjórnendur eru Andri Valur, Atli Stefán, Axel Paul, Bjarni Ben, Egill Moran, Elmar Torfason, Gunnlaugur Reynir, Kristján Thors og Sverrir Björgvins.