#2 Guðmundur Ingi 180°með Svenna

Send us a text Þetta eru sextán ár sem ég er búinn að vera í fangelsiskerfinu og í raun og veru er ég búinn að fá 24 ára fangelsisdóm fyrir ofbeldislausa glæpi frá aldamótum,“ segir Guðmundur Ingi Þóroddsson, frjáls maður, eftir að hafa eytt drjúgum hluta síðustu tuttugu ára í fangelsi. Guðmundur Ingi var stórtækur í fíkniefnasmygli til og frá landinu en er í seinni tíð þekktastur sem formaður Afstöðu, félags fanga, sem hann hefur sinnt um árabil af eftirtektarverðri einurð og festu.

Om Podcasten

Í þessum podcast þáttum ætlum við Linda og Svenni að fara 180 gráður og leita að upplýsingum og fróðleik um öll heimsins og himinsins málefni, niður í hin myrkustu málefni og hin björtustu því að ekkert er okkur óviðkomandi. Fylgstu með okkur og deildu að vild.Um okkur:Linda er draumóramanneskja sem vill sjá heiminn glimmerstráðan og kærleiksríkan og án vondu nornarinnar sem skemmir öll ævintýrin. Hún elskar að aðstoða einstaklinga sem lífsmarkþjálfi, samskiptaráðgjafi og sem rithöfundur. Svenni er hvatvís ævintýragarpur sem á samt afar fallegt hjarta og vill heiminum allt það besta. Hann klífur fjöll og fer um öll fyrnindi landsins og víðar að Víkingahætti en sest svo niður stöku sinnum og fær til sín ýmsa aðila sem hafa frá einhverju að segja sem skiptir máli að heyra.