#4 Hlynur Kristinn Rúnarsson 180°með Svenna

Send us a text Í viðtalinu við Svenna kemur fram að Hlyni hefur tekist það sem hann ætlaði sér og hefur snúið baki við neyslu. Hefur hann stofnað góðgerðarsamtökin Það er von. Hefur hann verið edrú nú í 2 ár . Hann er lærður einkaþjálfari en meðal efna sem hann misnotaði voru sterar. Hann segir að siðferði sitt bara breyst til hins verra við notkun stera og segir hann að ekki sé næg umræða um neyslu þeirra í samfélaginu. Síðan tók hann að neyta annarra fíkniefna. Hlynur segir um lífsviðhorf s...

Om Podcasten

Í þessum podcast þáttum ætlum við Linda og Svenni að fara 180 gráður og leita að upplýsingum og fróðleik um öll heimsins og himinsins málefni, niður í hin myrkustu málefni og hin björtustu því að ekkert er okkur óviðkomandi. Fylgstu með okkur og deildu að vild.Um okkur:Linda er draumóramanneskja sem vill sjá heiminn glimmerstráðan og kærleiksríkan og án vondu nornarinnar sem skemmir öll ævintýrin. Hún elskar að aðstoða einstaklinga sem lífsmarkþjálfi, samskiptaráðgjafi og sem rithöfundur. Svenni er hvatvís ævintýragarpur sem á samt afar fallegt hjarta og vill heiminum allt það besta. Hann klífur fjöll og fer um öll fyrnindi landsins og víðar að Víkingahætti en sest svo niður stöku sinnum og fær til sín ýmsa aðila sem hafa frá einhverju að segja sem skiptir máli að heyra.