#7cov19 180 með Lindu & Svenna

Send us a text Í þessum þætti förum við vítt og breitt yfir Covid sviðið. Fengum við of harkalega og hraða lendingu og erum við að taka á loft aftur? Hvað höfum við lært og hvaða stefnu ætlum við að taka í framhaldinu? Þessum spurningum og fleirum verður leitað svara við að þessu sinni. Framleiðandi- Sveinn Snorri Sighvatsson/ Volume Þáttastjórn- Sveinn Snorri Sighvatsson/ Linda Baldvins Upptaka - Volume studio

Om Podcasten

Í þessum podcast þáttum ætlum við Linda og Svenni að fara 180 gráður og leita að upplýsingum og fróðleik um öll heimsins og himinsins málefni, niður í hin myrkustu málefni og hin björtustu því að ekkert er okkur óviðkomandi. Fylgstu með okkur og deildu að vild.Um okkur:Linda er draumóramanneskja sem vill sjá heiminn glimmerstráðan og kærleiksríkan og án vondu nornarinnar sem skemmir öll ævintýrin. Hún elskar að aðstoða einstaklinga sem lífsmarkþjálfi, samskiptaráðgjafi og sem rithöfundur. Svenni er hvatvís ævintýragarpur sem á samt afar fallegt hjarta og vill heiminum allt það besta. Hann klífur fjöll og fer um öll fyrnindi landsins og víðar að Víkingahætti en sest svo niður stöku sinnum og fær til sín ýmsa aðila sem hafa frá einhverju að segja sem skiptir máli að heyra.