#08 Elfar Aðalsteinsson - leikstjóri

Elfar Aðalseinsson leikstýrði myndinni End of Sentence sem var opnunarmynd RIFF í ár. Bakgrunnur Elfars er talsvert ólíkur því sem við erum vön að heyra af þegar kemur að kvikmyndagerðarfólki. Hann starfaði sem framkvæmdastjóri um árabil þar til hann ákvað að venda kvæði sínu í kross og snúa sér að kvikmyndagerð þegar hann var 37 ára gamall. www.berserkfilms.com Tónlist: Magni Freyr Þórisson (magniice@gmail.com) https://magniice.bandcamp.com/ 

Om Podcasten

180⁰ Reglan er spjallþáttur í umsjón Freyju Kristinsdóttur. Í þættinum ræðir Freyja við fólk sem starfar á ólíkum vettvangi í kvikmyndageiranum á Íslandi, fær innsýn í feril viðmælenda og þeirra sýn á bransann hér á landi. Viðmælendur eru úr öllum áttum, en reglan er sú að hafa jafnt kynjahlutfall viðmælenda í þættinum.