#11 Elísabet Ronaldsdóttir - klippari

Elísabet Ronalds er einn af okkar fremstu klippurum. Núorðið klippir hún aðallega myndir úti í hinum stóra heimi, en gefur sér öðru hvoru tíma til að koma heim til Íslands og klippa. Klippari hefur gríðarleg áhrif á hvernig saga er sögð í bíómynd, og því getur útkoma myndar standið og fallið með því hvernig hún er klippt. Í þessu viðtali við Elísabetu fáum við að skyggnast inn í líf og starf þessarar lífsglöðu konu, og það er augljóst að ævistarfið er hennar ástríða.  Tónlist: Magni Freyr Þórisson (magniice@gmail.com) https://magniice.bandcamp.com/ 

Om Podcasten

180⁰ Reglan er spjallþáttur í umsjón Freyju Kristinsdóttur. Í þættinum ræðir Freyja við fólk sem starfar á ólíkum vettvangi í kvikmyndageiranum á Íslandi, fær innsýn í feril viðmælenda og þeirra sýn á bransann hér á landi. Viðmælendur eru úr öllum áttum, en reglan er sú að hafa jafnt kynjahlutfall viðmælenda í þættinum.