35. Hildur Sigurðardóttir - RÚV

Í þessum þætti kemur Hildur Sigurðardóttir í spjall til mín. Hildur starfar sem mannauðsstjóri á RÚV en hún var aðeins búin að starfa á RÚV í nokkra mánuði þegar Covid skall á svo það var þónokkur áskorun að byrja í nýrri vinnu á þeim tíma. Við ræðum stuttlega starfsumhverfi fjölmiðlafólks sem hefur tekið miklum breytingum undanfarin ár og vindum okkur svo í fróðlegt spjall um jafnréttismál þar sem hefur verið lögð áhersla á að skoða kynjahlutfall viðmælenda RÚV og þeirra sem starfa við fréttir og dagskrárgerð. Við komumst svo ekki hjá því að ræða aðeins um fjarvinnuna góðu. Frábærir styrktaraðilar eins og alltaf - Akademias, 50skills og Moodup. 

Om Podcasten

Þættirnir fjalla um mannauðsmál í víðu samhengi. Rætt er við mannauðsstjóra, ráðgjafa og aðra sérfræðinga á sviði mannauðsmála þar sem farið er yfir feril viðmælenda og þau verkefni sem verið er að vinna að hverju sinni.