36. Ragnheiður Aradóttir - PROevents & PROcoaching

Í þessum þætti ætlum við að tala við Röggu hjá PROevents & PROcoaching. Í þættinum förum við yfir hvaða þjónustu hún er að bjóða upp á sem er meðal annars teymisþjálfun, einstaklingsþjálfun og stjórnendaþjálfun. Eins og þið heyrið þá hefur hún mikla ástríðu fyrir þjálfun en Ragga er einn reynslumesti markþjálfi á landinu og hefur starfað bæði hérlendis og erlendis í mörg ár. Við komumst ekki hjá því að ræða Covid og hvernig hún snéri vörn í sókn þegar allt fór á hliðina. Svona til þess að toppa þetta þá ræddum við einnig um jákvæða sálfræði og hvernig orkustjórnun og flæði nýtist okkur sem best bæði í vinnu og einkalífi. Frábærir styrktaraðilar - Akademias, Moodup og Alfreð. 

Om Podcasten

Þættirnir fjalla um mannauðsmál í víðu samhengi. Rætt er við mannauðsstjóra, ráðgjafa og aðra sérfræðinga á sviði mannauðsmála þar sem farið er yfir feril viðmælenda og þau verkefni sem verið er að vinna að hverju sinni.