Þorgeir Ástvaldsson er sáttur við lífið

"Alltaf í röngum bransa" er hlaðvarp sem framleitt er af Litla Frjálsa Hljóðverinu.  Í þessum þætti er rætt við Þorgeir Ástvaldsson, landfræðing og útvarpsmann.  Þorgeir er ein þekktasti útvarpsmaður og skemmtikraftur landsins og hefur verið daglegur gestur á heimilum landsmanna síðan 1977, þegar hann hóf störf á Ríkisútvarpinu.   Þorgeir segir hér frá lífshlaupi sínu og hvernig tónlistin hefur ofið sig inn í líf hans og fjölskyldu.   Jón Axel Ólafsson ræðir við Þorgeir og gefur ekkert eftir.  Hvernig var lífið á bakvið tjöldin?  Hvernig fór Ríkisútvarpið með Þorgeir og hvaða toll tók skemmtanalífið. Þorgeir er klárlega í réttum bransa!

Om Podcasten

"Alltaf í röngum bransa" er framleitt af Litla frjálsa hljóðverinu. Þættirnir veita hlustendum skemmtilega innsýn í líf viðmælenda hverju sinni sem hafa frá skemmtilegri reynslu að segja, skoðunum, hugmyndum og fróðleik sem oft má læra eitthvað af. Þættirnir eru ókeypis og öllum aðgengilegir. Allur réttur áskilin.