1. Davíð Helgason, stofnandi Unity

Í þessum þætti er talað við Davíð Helgason stofnanda og fyrrum framkvæmdastjóra Unity. Davíð er fæddur árið 1977 í Reykjavík en flutti síðan til Danmerkur á unglingsaldri. Hann kom að stofnun hugbúnaðarfyrirtækisins Unity árið 2003 þá aðeins 25 ára gamall. Unity er eins konar leikjavél sem gerir tölvuleikjaframleiðendum kleift að búa til tölvuleiki með minni fyrirhöfn en um helmingur allra leikja sem framleiddir eru í dag eru gerðir með Unity. Fyrirtækið fór síðan á bandarískan hlutabréfamarkað árið 2020 þar sem það var metið á $13,7 milljarða bandaríkjadollara og átti Davíð þá um 4% hlut í fyrirtækinu. Mögnuð velgengissaga hér á ferð!

Om Podcasten

Athafnafólk er hlaðvarpsþáttur þar sem talað er við frumkvöðla og stjórnendur sem hafa náð eftirtektarverðum árangri í viðskiptalífinu. Umsjón með þáttunum hefur Sesselja Vilhjálmsdóttir.