13. Hilmar Gunnarsson, stofnandi Arkio og Modio

Viðmælandi þáttarins er Hilmar Gunnarsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Arkio. Hilmar er fæddur árið 1971 og ólst upp í Sundunum í Reykjavík, Danmörku og í Frakklandi. Hann gekk í Verzlunarskólann en þaðan lá leið hans í Háskóla Íslands þar sem hann lauk gráðu í viðskiptafræði. Eftir útskrift byrjaði Hilmar að vinna í markaðsmálum hjá Íslandsbanka og tók stuttu síðar við sem markaðsstjóri bankans og vann þar í fjögur ár þangað til hann gekk til liðs við OZ, sem var þá ört vaxandi sprotafyrirtæki. Hilmar leiddi síðan söluna á OZ til Nokia árið 2008, þar sem fyrirtækið var selt fyrir um $300 milljónir bandaríkjadala. Hilmar stofnaði síðan ásamt félögum sínum lítinn fjárfestingasjóð sem heitir Investa og fjárfestir á fyrstu stigum fjármögnunar sprotafyrirtækja og hefur hann fjárfest og setið í mörgum stjórnum sprotafyrirtækja síðan. Árið 2013 stofnaði Hilmar síðan fyrirtækið Modio, sem gerði notendum kleift að búa til alls kyns leikföng sem þeir gátu síðan prentað út í þrívíddarprentara. Eftir aðeins rúmlega ár seldi Hilmar síðan Modio til bandaríska stórfyrirtækisins Autodesk sem er leiðandi á sviði þrívíddarhugbúnaðar. Hilmar fylgdi sölunni eftir og hóf störf hjá Autodesk sem vörustjóri og vann þar í tvö ár þangað til hann stofnaði nýtt fyrirtæki sem heitir Arkio árið 2017. Arkio er hönnunarhugbúnaður þar sem notendur geta hannað saman mannvirki á spjaldtölvum og í sýndarveruleika og með því geta séð hönnunina betur fyrir sér áður en mannvirki eru byggð. Þátturinn er kostaður af VÍS og Kaffitár.

Om Podcasten

Athafnafólk er hlaðvarpsþáttur þar sem talað er við frumkvöðla og stjórnendur sem hafa náð eftirtektarverðum árangri í viðskiptalífinu. Umsjón með þáttunum hefur Sesselja Vilhjálmsdóttir.