18. Kolbrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Íslandshótelum
Viðmælandi þáttarins er Kolbrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Íslandshótela. Íslandshótel rekur 17 hótel með yfir 1.700 gistirými út um allt land auk funda- og ráðstefnuaðstöðu. Kolbrún tók við starfinu árið 2016 en þekkti vel til fyrirtækisins enda setið í stjórn hótelsins áður. Kolbrún er fædd árið 1962 og er alin upp í Kópavogi. Hún gekk í MH og kláraði svo Cand Ocean gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og lauk síðar Excecutive Education frá Kenan-Flagler Business School og síðan löggildingu í verðbréfamiðlun. Kolbrún hefur m.a. starfað sem fjármálastjóri Húsasmiðjunnar, útibússtjóri og forstöðumaður bakvinnslu í Íslandsbanka, framkvæmdastjóri hjá VÍS og sem framkvæmdastjóri Kjölfestu, framtakssjóðs. Kolbrún hefur setið í hinum ýmsu stjórnum fyrirtækja t.d. eins og hjá Íslandsbanka, Fastus, Húsasmiðjunni, Senu og verið formaður endurskoðunarnefndar hjá Sameinaða lífeyrissjóðnum. Þátturinn er kostaður af VÍS og Kaffitár.