2. Gauti Guðmundsson, stofnandi Bókunar sem seldi fyrirtækið sitt til Tripadvisor
Viðmælandi þessa þáttar er Ólafur Gauti Guðmundsson eða Gauti eins og hann er alltaf kallaður. Gauti er fæddur árið 1978 og gekk í Vogaskóla og MR. Eftir menntaskólann lá leið hans til New York og London áður en hann lauk prófi í verkfræði frá DTU í Danmörku. Gauti stofnaði hugbúnaðarfyrirtækið Bókun árið 2012 ásamt Hjalta Baldurssyni þar sem Gauti starfaði sem tæknistjóri fyrirtækisins. Bókun býr til hugbúnað í kringum bókanir á ferðatengrdri afþreyingu. Árið 2018 var síðan fyrirtækið selt til bandaríska netferðarisans, Tripadvisor. Í dag fáum við að heyra meira um sögu Gauta! Kostunaraðilar þáttarins eru: VÍS (http://vis.is), Kaffitár (http://kaffitar.is) og Askja (http://askja.is)