21. Ari Fenger, forstjóri 1912 og formaður Viðskiptaráðs

Viðmælandi þessa þáttar er Ari Fenger, forstjóri 1912 og formaður Viðskiptaráðs. 1912 er aldargömul heildsala og fjölskyldufyrirtæki, sem þá hét Nathan & Olsen og var stofnað árið 1912. Fyrirtækið er eitt af stærstu fyrirækjum landsins í heildsölu með dagvöru og veltir um 11 milljörðum íslenskra króna. 1912 er móðurfélag Nathan & Olsen, sem sinnir heildsölu á sviði snyrti- og dagvöru, Ekrunnar sem selur aðföng til stóreldhúsa og matvælaiðnaðarins og Emmessís, ísgerðarinnar. En Ari er fæddur árið 1980 og er alinn upp í nesinu. Hann gekk í Verslunarskóla Íslands og byrjaði síðan að vinna sem vörumerkjastjóri hjá Nathan & Olsen og síðan sem forstjóri fyrirtækisins þangað til hann tók við sem forstjóri rekstrarfyrirtækisins, 1912. Ari er einnig formaður Viðskiptaráðs og er jafnframt stór hluthafi í Stoðum, einu stærsta fjárfestingafélagi landsins. Þátturinn er kostaður af VÍS og Kaffitár.

Om Podcasten

Athafnafólk er hlaðvarpsþáttur þar sem talað er við frumkvöðla og stjórnendur sem hafa náð eftirtektarverðum árangri í viðskiptalífinu. Umsjón með þáttunum hefur Sesselja Vilhjálmsdóttir.