33. Sigríður Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri hjá Experian

Viðmælandi þáttarins er Sigríður Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri hjá Experian, sem er breskt gagna- og tæknifyrirtæki staðsett í London. Sigríður er fædd árið 1968 og ólst upp í miðbænum og svo Smáíbúðarhverfinu. Hún gekk í Austurbæjarskóla, Breiðagerðisskóla, Réttó og síðan Menntaskólann við Sund. Sigríður er doktor í leiðtoga- og nýsköpunarfræðum frá The University of Manchester, er með MBA frá IESE Business School og er markaðsfræðingur frá Háskólanum í Suður Karólínu í Bandaríkjunum. Sigríður hefur búið og unnið víða erlendis og m.a. starfað sem stjórnandi hjá American Express um árabil, nýsköpunarstjóri hjá breska bankanum Santander og framkvæmdastjóri hjá Tesco, bresku smásölukeðjunni. Sigríður hefur einnig setið í ýmsum stjórnum t.d. eins og breska félaginu AutoTrader og stjórn Frumtaks, vísissjóðs. Þátturinn er kostaður af Icelandair.

Om Podcasten

Athafnafólk er hlaðvarpsþáttur þar sem talað er við frumkvöðla og stjórnendur sem hafa náð eftirtektarverðum árangri í viðskiptalífinu. Umsjón með þáttunum hefur Sesselja Vilhjálmsdóttir.