34. Brynja Baldursdóttir, forstjóri Motus

Viðmælandi þáttarins er Brynja Baldursdóttir, forstjóri Greiðslumiðlunar Íslands/Motus. Greiðslumiðlun býður upp á skráningar- og greiðslulausnir fyrir fyrirtæki, félagasamtök og opinbera aðila. Brynja er fædd árið 1976 og ólst upp í Laugardalnum í Reykjavík. Hún gekk í Menntaskólann við Hamrahlíð en þaðan lá leið hennar í Háskóla Íslands þar sem hún lauk BS prófi í Iðnaðarverkfræði og síðar MS gráðu í Aðgerðargreiningu frá Georgia Insitute of Technology. Brynja hefur m.a. unnið sem forstöðumaður sölumála hjá Símanum, samskipastjóri hjá OZ og lengst af sem forstjóri Creditinfo á Íslandi og forstjóri CreditInfo á Norðurlöndunum. En Creditinfo er fyrirtæki sem sérhæfir sig í miðlun fjárhags- og viðskiptaupplýsinga, áhættumati og fjölmiðlavöktun fyrirtækja. Brynja hefur setið í ýmsum stjórnum t.d. hjá Fossum fjárfestingabanka, Sensa, Lífsverki og Viðskiptaráði.  Þátturinn er kostaður af Icelandair.

Om Podcasten

Athafnafólk er hlaðvarpsþáttur þar sem talað er við frumkvöðla og stjórnendur sem hafa náð eftirtektarverðum árangri í viðskiptalífinu. Umsjón með þáttunum hefur Sesselja Vilhjálmsdóttir.