36. Sylvía Kristín Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri þjónustu og markaðssviðs hjá Icelandair

Viðmælandi þáttarins er Sylvía Kristín Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri þjónustu og markaðssviðs hjá Icelandair. Sylvía er fædd árið 1980 og er alin upp í Vesturbænum. Hún gekk í Kvennaskólinn í Reykjavík og kláraði BS próf í iðnaðarverkfræði frá Háskóla íslands og Master í aðgerðarannsóknum frá London School of Economics. Sylvía starfaði í fimm ár hjá Amazon, fyrst sem sérfræðingur í nýfjárfestingum á fjármálasviði og seinna sem yfirmaður viðskiptagreindar og vörustjóri í Kindle deild Amazon. Sylvía hefur starfað sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og markaðsmála hjá Origo, forstöðumaður á rekstrarsviði hjá Icelandair, forstöðumaður tekjustýringar og jarðvarmadeildar hjá Landsvirkjun og forstöðumaður viðbúnaðarsviðs Seðlabanka Íslands. Sylvía hefur einnig starfað sem stundakennari við Háskóla Íslands og setið í ýmsum stjórnum t.d. eins hjá og Símanum, Íslandssjóðum, Ölgerðinni og Orkufjarskiptum. Þátturinn er í boði Icelandair.

Om Podcasten

Athafnafólk er hlaðvarpsþáttur þar sem talað er við frumkvöðla og stjórnendur sem hafa náð eftirtektarverðum árangri í viðskiptalífinu. Umsjón með þáttunum hefur Sesselja Vilhjálmsdóttir.