5. Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis

Viðmælandi þessa þáttar er Katrín Pétursdóttur, forstjóri Lýsis, sem framleiðir meðal annars þorskalýsið sem allir Íslendingar þekkja. Katrín er fædd árið 1962 og er alin upp miðbæ Reykjavíkur. Hún gekk í Verzlunarskólann og lauk námi í rekstrarfræði í Tækniskóla Íslands sem núna er hluti af Háskólanum í Reykjavík. Katrín kom ung að árum að fyrirtækjarekstri enda alin upp í mikilli frumkvöðlafjölskyldu. Árið 1999 keypti hún fyrirtækið Lýsi og settist í forstjórastólinn og hefur Lýsi vaxið og dafnað undir hennar stjórn.  Þátturinn er kostaður af VÍS, Kaffitár og Bílaumboðinu Öskju.

Om Podcasten

Athafnafólk er hlaðvarpsþáttur þar sem talað er við frumkvöðla og stjórnendur sem hafa náð eftirtektarverðum árangri í viðskiptalífinu. Umsjón með þáttunum hefur Sesselja Vilhjálmsdóttir.