6. Georg Lúðvíksson, stofnandi og forstjóri Meniga
Viðmælandi þessa þáttar er Georg Lúðvíksson, stofnandi og forstjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Meniga en fyrirtækið býður upp á alls kyns stafrænar bankalausnir. Georg er fæddur árið 1976 og er alinn upp í Vesturbænum. Hann gekk í MR og þaðan lá leið hans í hugbúnaðarverkfræði í Háskóla Íslands og síðan Harvard háskóla þar sem hann lauk MBA gráðu. Georg stofnaði Meniga árið 2009 með bræðrunum Ásgeiri og Viggó Ásgeirssyni en í dag starfa um 150 manns hjá fyrirtækinu í fjórum löndum. Fyrirtækið hefur safnað 6,8 milljörðum íslenskra króna í hlutafé frá þekktum erlendum fagfjárfestum og eru með suma af stærstu bönkum Evrópu fyrir viðskiptavini. Þátturinn er kostaður af VÍS, Kaffitár og Bílaumboðinu Öskju.