7. Hrund Rudolfsdóttir, forstjóri Veritas
Viðmælandi þessa þáttar er Hrund Rudolfsdóttir, forstjóri Veritas. Hrund er fædd árið 1969 og er alin upp í Fossvoginum í Reykjavík. Hún gekk í Menntaskólann við Sund og kláraði svo viðskiptafræði í Háskóla Íslands og eftir það kláraði hún framhaldsnám í alþjóðaviðskiptum við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn. Hrund hefur m.a. unnið sem framkvæmdastjóri hjá Lyf og Heilsu, Milestone og Marel en nú starfar hún sem forstjóri Veritas, sem er móðurfélag nokkurra fyrirtækja sem starfa á heilbrigðismarkaði. Ásamt því að vera reyndur stjórnandi hefur Hrund setið í hinum ýmsu stjórnum fyrirtækja t.d. eins og hjá fjármálafyrirtækinu Stefni, Eimskipum og Veritas. Í þættinum ræðir Hrund um uppvöxt hennar og menntun, árin í Danmörku, hvernig hún fótaði sig sem stjórnandi ung að árum og mikilvægi árangursríkrar stefnumótunar og stjórnarhátta innan fyrirtækja. Þátturinn er kostaður af VÍS, Kaffitár og Bílaumboðinu Öskju.