8. Mundi Vondi, stofnandi og framkvæmdastjóri Klang Games
Viðmælandi þessa þáttar er Guðmundur Hallgrímsson eða Mundi Vondi eins og hann er alltaf kallaður. Mundi er fæddur árið 1987 og er alinn upp í Vesturbæ Reykjavíkur og víðar. Hann stoppaði stutt við í MH, Iðnskólanum og Myndlistaskóla Íslands en þaðan lá leið hans í Listaháskóla Íslands þegar hann var aðeins 18 ára gamall. Mundi hefur m.a. unnið sem grafískur hönnuður, myndlistarmaður og fatahönnuður áður en leið hans lá í leikjaiðnaðinn. Hann er framkvæmdastjóri og einn stofnenda leikjafyrirtækisins Klang Games sem vinnur nú að fjölspilunarleiknum Seed. Leikurinn á líkja eftir hinu raunverulega lífi og er hlutverk spilarans að leika manneskju sem er partur af fjölskyldu og stærra samfélagi með öllum hinum spilurunum. Þeir félagar hafa nú safnað um 36 milljónum bandaríkjadollara eða um 4,5 milljarða íslenskra króna og hyggja á útgáfu leiksins Seed í nánustu framtíð. Þátturinn er kostaður af VÍS, Kaffitár og Bílaumboðinu Öskju.