X-Nýsköpun, vísindin og við - Ólafur Þór Gunnarsson

X-Nýsköpun Ólafur Þór Gunnarsson Ólafur Þór Gunnarsson kemur hjólandi í þennan þátt. Hann fer yfir hugmyndir sínar um vísindalega nýsköpun, þekkingu, hlutverk ríkisins í Nýsköpun og margt margt fleira. Eins og við er að búast er lækninum Ólafi tíðrætt um nýsköpun í heilbrigðisgeiranum. Ellefti þáttur Auðvarpsins er jafnframt fimmti þátturinn í sérstakrar seríu tileinkaða stjórnmálum. Í seríunni tökum við á móti fulltrúum stjórnmálaflokka á Íslandi og ræðum þeirra...

Om Podcasten

Auðvarpið fjallar um vísindalega nýsköpun frá öllum hliðum. Hvað er vísindaleg nýsköpun? Hvernig getur hún aukið samkeppnishæfni okkar?Er vísindaleg nýsköpun mest spennandi svið nýsköpunar? Þar sem uppgötvanir og rannsóknir verða að verðmætum, þar sem þekkingin verður til í okkar frábæru háskólim og rannsóknarsamfélagi.Með Auðvarpinu færum við ykkur innsýn í þennan heim og þá möguleika sem í honum felast. Við tökum viðtöl við okkar fremsta fólk á þessu sviði og tökum fyrir hugverkavernd og þær hættur sem oft leynast á leiðinni.Stjórnandi Auðvarpsins er Sverrir Geirdal Viðskiptaþróunarstjóri hjá Auðnu tæknitorgi sem er tækniyfirfærslu stofa Íslands í eigu allra Háskólanna, Landsspítalans, Samtaka Iðnaðarins og rannsóknarstofnanna. Frekari upplýsingar á heimasíðunni www.audna.is