ECLIPSE

Í þessum þætti ræða Katla og Vala þriðju bókina í Twilight bókaflokknum, Eclipse. Í lok síðustu bókar var Bella viss um að hana langaði að verða vampíra en nú þarf hún að velja - líf eða dauða, en hvort er hvað? Stelpurnar hafa mikið að segja um þessa bók Stephenie Meyer og íbúa Forks, mikið hlegið, mikið drama, mikið gaman!  Fylgið okkur á Instagram: https://www.instagram.com/bedmalumbokmenntir/

Om Podcasten

Beðmál um Bókmenntir: Hlaðvarp Um Heim Bókanna er í umsjón Kötlu Ársælsdóttur. Katla er nýútskrifaður bókmenntafræðingur og hefur mikinn áhuga á bókmenntum líkt og gefur að skilja. Með hlaðvarpinu vill Katla sýna hlustendum fjölbreytileikann sem búa í bókmenntum á líflegan og skemmtilegan hátt. Fylgist með á instagram! https://www.instagram.com/bedmalumbokmenntir/ Intro: Sigurhjörtur Pálmason Klipping: Vala Fanney