#236 Draugamyndir með Sigga

Sigurður Trausti Traustason er deildarstjóri safneignar og rannsókna hjá Listasafni Reykjavíkur og mikill áhugamaður um draugamyndir. Siggi er einnig einn af æskuvinum Hafsteins og Bíóblaðurs fastagestur.   Siggi mætti með sinn topp 10 draugamyndalista en Siggi setti aðallega fókus á svokallaðar haunted house myndir. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars myndirnar The Conjuring, The Changeling, Housebound, House on Haunted Hill, The Shining og margar fleiri.   Þátturinn er í boði Sambíóanna, Subway og Popp Smells frá Nóa Síríus.

Om Podcasten

Podcast þar sem Hafsteinn Sæmundsson fær alls konar fólk til sín og spjallar við það um lífið og bíómyndir. Nýr þáttur alla miðvikudaga.