#239 Topp 10 með Arnari Tómas

Arnar Freyr Tómasson er kvikmyndaáhugamaður og kvikmyndagerðarmaður. Arnar hefur gert nokkrar stuttmyndir sem hafa vakið athygli og hann stefnir á í framtíðinni að gera kvikmynd í fullri lengd. Arnar mætti með topp 10 listann sinn til Hafsteins og þeir ræða hann í sameiningu.   Í þættinum ræða þeir meðal annars myndirnar Dune, Cars, The Amazing Spider-Man 2, Prisoners, Django Unchained og margar fleiri.   Þátturinn er í boði Sambíóanna, Subway og Popp Smells frá Nóa Síríus.

Om Podcasten

Podcast þar sem Hafsteinn Sæmundsson fær alls konar fólk til sín og spjallar við það um lífið og bíómyndir. Nýr þáttur alla miðvikudaga.