#014 : Never Split The Difference - Chris Voss

Samningatækni er eitthvað sem allir hafa gott af að kynna sér. Chris Voss er meðal helstu sérfræðinga á þessu sviði, en hann starfaði um árabil fyrir FBI sem aðal samningamaðurinn í gíslatökum og stórum valdaránum. Reynslu sína hefur hann yfirfært yfir á önnur svið eins og í mannauðsmálum, viðskiptum og persónulegum.  Bókin er aðgengileg, skemmtileg og einstaklega áhugaverð. Við Bókabræður mælum heilshugar með þessari góðu bók. Þátturinn er tekinn upp í Rabbrýminu, sem er upptökuver í Bókasafni Hafnarfjarðar.

Om Podcasten

Bókaspjall. Rætt um og farið yfir bækur í ýmsum flokkum. Saga, heimspeki, tækni, heilsa o.fl. Bókabræður eru Kolbeinn Elí Pétursson og Ómar Ómar Ágústsson.