5 tól sem þú þarft í skipulagsferlinu [S1E17]

Maður þarf að meðhöndla svo mikið af skjölum, allskonar efni og plön þegar maður er að skipuleggja brúðkaup og það geta farið margir tímar í það að finna hluti sem eru hér og þar. Til að stytta þér tíma og auðvelda líf þitt vildi ég deila með þér 5 tólum sem munu hjálpa þér að skupuleggja þig og öll skjölin. Svo ákvað ég að henda inn 3 bónus tólum alveg í lokinn ef þú elskar tól eins mikið og ég.  ----- Upplýsingar um Og Smáatriðin Spjöllum saman á Instagram @ogsmaatridin Ef þig langar að fá meira info um brúðkaupsskipulag, skreytingar eða koma í podcast viðtal hafður samband alina@ogsmaatridin.is

Om Podcasten

Brúðkaupshlaðvarp sem mun gefa þér innsýn inn í heim brúðkaupsgeirans og hjálpa þér að sigla áhyggjulaust í gegnum hann. Ég heiti Alína og rek brúðkaupsskipulags- og skreytingar fyrirtækið Og smáatriðin. Markmið mitt með þessu hlaðvarpi er að veita þér innblástur, gefa þér innsýn inn í brúðkaupsskipulagsferlið og hjálpa þér að láta drauma brúðkaupið þitt verða að veruleika. Í bland við solo þætti þar sem við köfum djúpt inn í allskonar viðfangsefni ásamt skemmtilegum viðtölum við söluaðila og brúðhjón, vonast ég til að gera einmitt það ✨