Allt um brúðartertur með Evu Maríu frá Sætum Syndum [S1E18]

Við tökum spjall með Evu Maríu frá Sætum Syndum en hún er búin að vera að reka fyrirtæki í 9 ár og er komin með 2 útibú. Hún er að sérhæfa sig í glæsilegum kökum og eftirréttum. Við spjöllum saman um upphaf hennar í rekstrinum, hvernig hugmyndin að Sætum Syndum varð til ásamt því að gefa þér allskonar brúðarterturáðum og fullt fleirra. Þetta viðtal var tekið í sumar og því sumt af því sem við ræðum búið að gerast og við mikið að tala um sumarið og veiruna en ég vildi bara ekki að þú myndir missa af þessum skemmtilega þætti.  Njóttu!! Þú getur fundið allt um Sætar Syndir hér: Vefsíða : https://saetarsyndir.is/  Instagram: @sætarsyndir ----- Upplýsingar um Og Smáatriðin Spjöllum saman á Instagram @ogsmaatridin Ef þig langar að fá meira info um brúðkaupsskipulag, skreytingar eða koma í podcast viðtal hafður samband alina@ogsmaatridin.is 

Om Podcasten

Brúðkaupshlaðvarp sem mun gefa þér innsýn inn í heim brúðkaupsgeirans og hjálpa þér að sigla áhyggjulaust í gegnum hann. Ég heiti Alína og rek brúðkaupsskipulags- og skreytingar fyrirtækið Og smáatriðin. Markmið mitt með þessu hlaðvarpi er að veita þér innblástur, gefa þér innsýn inn í brúðkaupsskipulagsferlið og hjálpa þér að láta drauma brúðkaupið þitt verða að veruleika. Í bland við solo þætti þar sem við köfum djúpt inn í allskonar viðfangsefni ásamt skemmtilegum viðtölum við söluaðila og brúðhjón, vonast ég til að gera einmitt það ✨