Allt um brúðkaupsvefsíður [S2E22]

Mig langaði að tala við þig um brúðkaupsvefsíður og mikilvægi þeirra, afhverju ég er svona hrifin af þeim og það mikilvæga, hvað á að vera í þeim. Ég fer vel yfir allar upplýsingar sem er gott að hafa á vegsíðunni ykkar, hvað þið gætuð bætt við og munurinn á vefsíðunni og Facebook. Einnig deili ég nokkrum stöðum þar sem þið getið hannað fallegar vefsíður á ódýran máta, sem ég vona að nýtast ykkur. Sendu mér skilaboð ef ég náið að sannfæra þig til að setja saman brúðkaupsvefsíðu og ef þú hefur verið með síðu, hver var þín reynsla af því? ------- Upplýsingar um Og Smáatriðin Ef þú ert með spurningar eða langar bara að spjalla, sendu mér línu á @ogsmaatridin Fullt af gagnlegu efni má líka finna á síðunni minni hér: https://www.ogsmaatridin.is/ Ef þig langar að fá meira info um brúðkaupsskipulag, skreytingar eða  koma í podcast viðtal hafður samband  í tölvupóstfangið  alina@ogsmaatridin.is

Om Podcasten

Brúðkaupshlaðvarp sem mun gefa þér innsýn inn í heim brúðkaupsgeirans og hjálpa þér að sigla áhyggjulaust í gegnum hann. Ég heiti Alína og rek brúðkaupsskipulags- og skreytingar fyrirtækið Og smáatriðin. Markmið mitt með þessu hlaðvarpi er að veita þér innblástur, gefa þér innsýn inn í brúðkaupsskipulagsferlið og hjálpa þér að láta drauma brúðkaupið þitt verða að veruleika. Í bland við solo þætti þar sem við köfum djúpt inn í allskonar viðfangsefni ásamt skemmtilegum viðtölum við söluaðila og brúðhjón, vonast ég til að gera einmitt það ✨