Sprengisandur 06.04.2025 - Viðtöl þáttarins

Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Jón Kristjánsson fiskifræðingur um sjávarútveginn. Jón ræðir stöðuna í hafinu í kringum landið í kjölfar viðtals við Þorstein Sigurðsson forstjóra Hafró fyrir viku. Öfugt við Hafró telur Jón að fiskveiðistjórnunin og -ráðgjöfin hafi brugðist algjörlega og henni sé um að kenna hversu nytjastofnar minnka mikið.  Þorgeir Þorgeirsson hagfræðingur og Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins um alþjóðamálin. Þeir ræða áhrif tollahækkana bandaríkjastjórnar á heimshagkerfið, á hag almennings, fyrirtækja og Íslands.  Sigmar Guðmundsson og Bergþór Ólason alþingismenn um stjórnmálin. Þeir ræða tillögur ríkisstjórnar um hækkun/leiðréttingu veiðigjalda. Rothögg fyrir sjávarútveg eða eðlileg leiðrétting?? Margrét Tryggvadóttir formaður Rithöfundasambands Íslands um menningarmál og höfundarétt.Hún ræðir meintan skipulagðan stuld stórfyrirtækja á höfundarvörðu efni sem notað er til að fóðra gagnabanka gervigreindar í gegnum ólögmæt bókasöfn á netinu. Fjölmargir íslenskir höfundar eiga bækur/vísindagreinar sem nýttar eru með þessum hætti. 

Om Podcasten

Bylgjan er fyrsta einkarekna útvarpsstöðin á Íslandi. Hún hóf útsendingar 28.ágúst árið 1986