Bestu ár lífsins og þægindaramminn

Í 18. þætti Dótakassans er fjallað um bestu ár lífsins og hversu mikilvægt það er að fara annað slagið út fyrir þægindarammann sinn. Með því að ögra okkur sjálfum reglulega náum við oft að stækka þægindarammann okkar og þá erum við betur tilbúin til að takast á við nýjar aðstæður og ný verkefni. Tenglar: Viltu senda inn spurningu eða hugmynd á Dótakassann. Hér er hægt að lesa sér til um sjálfsmynd. Þægindaramminn / Comfort zone

Om Podcasten

Í Dótakassanum er fjallað um ýmislegt sem tengist ungu fólki og hvernig hægt er að hafa uppbyggileg áhrif á eigin líðan og heilsu. Umsjónarmaður hlaðvarpsins Bóas Valdórsson er sálfræðingur í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Netfang: dotakassinnhladvarp@gmail.com.