Fimm leiðir að vellíðan - Að taka eftir

Þessi þáttur er þriðji þátturinn af fimm um fimm leiðir að vellíðan. Í þessum þætti er fjallað um hversu gott það getur verið að veita allskonar hlutum athygli. Hvernig við getum æft okkur í því að taka eftir jákvæðum og uppbyggilegum hlutum í kringum okkur og rætt um hvaða áhrif það getur haft á lífið okkar og það hvernig okkur líður. Verkefni tengd þættinum má finna hér: https://5leidir.blogspot.com/

Om Podcasten

Í Dótakassanum er fjallað um ýmislegt sem tengist ungu fólki og hvernig hægt er að hafa uppbyggileg áhrif á eigin líðan og heilsu. Umsjónarmaður hlaðvarpsins Bóas Valdórsson er sálfræðingur í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Netfang: dotakassinnhladvarp@gmail.com.