226. Þáttur - STAÐAN ?!?

Kæru hlustendur , Jú 21.umferðin er að baki og við erum klárlega engu nær um hvernig þetta mun líta út allt saman eftir lokaumferðina í næstu viku. Hattarmenn tryggðu sig inní úrslitakeppnina í fyrsta skipti í sögu félagsins með glæsilegum endurkomusigri á Stólunum fyrir Austan , Stjarnan hélt sér á lífi með því að enda sigurgöngu Grindvíkinga og El Clasico var algjör sóknarveisla sem var kórónuð með frammistöðu Remy Martin í 4.leikhlutanum þar sem gæjinn lék sér að vörn Njarðvíkurliðsins og innsiglaði Keflavíkursigur. Endalínan í boði Viking Lite, Brons , Cintamani, Soho, Fiskbúð Reykjaness , Macland , Miðherja , Just Wing´in It og OneBetson

Om Podcasten

Beinskeytt umræða um íslenskan körfubolta. Halldór Örn - Gunni Stef - Rúnar Ingi