Blue Monday – Yfirlýsing

New Order – Blue Monday Hvenær varð síðast bylting? Hversu gömul er sú hugmyndafræði sem við styðjumst við á Vesturlöndum í dag? Hversu gamall er nútíminn? Þurfti ekki að umturna öllum viðmiðum og setja ný mörk eftir lok síðari heimstyrjaldar – eða eftir fall kommúnismans? Hvert er skipulag hlutanna í alþjóðavæddum heimi viðskipta og hugmynda? Sjöundi mars 1983 var mánudagur. Það var engin heimstyrjöld í gangi þá. Það voru heldur engin minnistæð þjóðfélagsátök, götuóeirðir eða upphlaup. Mánudagurinn sjöundi mars 1983 var í raun ósköp venjulegur mánudagur hjá flestum, mæðulegur eins og mánudögum er vísa. Fólk mætti í vinnuna, borðaði ristað brauð og pældi ekkert sérstaklega í hvert heimurinn stefndi. Síðan eru liðin 37 ár. Hitastig andrúmsloftsins hefur hækkað. Hjörtu okkar hafa kólnað.

Om Podcasten

Fílalag er hlaðvarp um tónlist. Á hverjum föstudegi senda þeir Snorri Helgason og Bergur Ebbi frá sér nýjan þátt þar sem dægurlag er tekið fyrir og fílað í ræmur. Í fíluninni felst að greina menningarleg fyrirbæri sem eru kynnt í laginu, tískustrauma í hljómi og tíðaranda í framsetningu. Farið er um víðan völl og fjallar þátturinn um poppmenningu í stærra samhengi. Um málið er ekkert meira að segja. Fílið þetta bara og fokk svo off.