Þeir bestu – Ég mun fela öll mín tár

Hljómar – Ég mun fela öll mín tár Undir fílunarnálunni eru Hljómar frá Keflavík. Besta band Íslands, fyrr og síðar.  Þeir voru vinsælastir, frjóastir og metnaðarfyllstir allra banda á Íslandi í svo langan tíma. Óháð öllu meiki og heimsyfirráðum, þá hefur ekkert band gefið hann jafn grimmann. Frá falsettum Berta Jens til lagasmíða Gunna Þórðar, frá tyggjókjafti Rúna Júl til ölvandi raddar Shady Owens. Hljómar eru sólkerfi þar sem flest önnur bönd eru kálgarður. Hættum að hafa í flimtingum. Keflavík er sólin. Hljómar geislar hennar.

Om Podcasten

Fílalag er hlaðvarp um tónlist. Á hverjum föstudegi senda þeir Snorri Helgason og Bergur Ebbi frá sér nýjan þátt þar sem dægurlag er tekið fyrir og fílað í ræmur. Í fíluninni felst að greina menningarleg fyrirbæri sem eru kynnt í laginu, tískustrauma í hljómi og tíðaranda í framsetningu. Farið er um víðan völl og fjallar þátturinn um poppmenningu í stærra samhengi. Um málið er ekkert meira að segja. Fílið þetta bara og fokk svo off.