For Whom The Bell Tolls – Feigð, húð, hryggð, hefnd, reiði, örkuml, angist, bólur, reiði, sekt, keyrsla

Metallica – For Whom the Bell Tolls Kalifornía 1981. Veröldin heilsar nýrri tónlistarstefnu. Metallinn hefur fengið að súrrast í áratug og nú er komið  að kalsíum og næringaefnabættri uppfærslu. Keyrslu-málmurinn er fundinn upp. Thrash-metallinn. Fremstir í flokki eru nokkrir unglingar í gallajökkum með slæma húð. Þeir eiga eftir að verða eitt stærsta skrímsli tónlistarsögunnar. Hvort sem þú ert spjótkastari frá Algeirsborg eða pípulagningamaður í Prag. Þeir stungu málm í rassinn þinn. Þó þú sért fín frú í Ofanleiti. Enginn er hólpinn. Vegir málsmiðjunnar liggja svo víða og hafa svo djúpa grunna, að enginn getur fetað sig i gegnum lífið án þess að þurfa að fara yfir slík gatnamót. Kirk, James, Lars og Cliff. Þetta var ólíklegt, þetta er jafnvel fáránlegt, en söngvar ykkar um andstyggð og tortímingu eru eitt útbreiddasta gospel okkar tíma. Öllu er afmörkuð stund, eins og segir í hinni merku bók, og núna er stundin til að fíla það.

Om Podcasten

Fílalag er hlaðvarp um tónlist. Á hverjum föstudegi senda þeir Snorri Helgason og Bergur Ebbi frá sér nýjan þátt þar sem dægurlag er tekið fyrir og fílað í ræmur. Í fíluninni felst að greina menningarleg fyrirbæri sem eru kynnt í laginu, tískustrauma í hljómi og tíðaranda í framsetningu. Farið er um víðan völl og fjallar þátturinn um poppmenningu í stærra samhengi. Um málið er ekkert meira að segja. Fílið þetta bara og fokk svo off.