Glugginn – Frumdagar kúlsins

Flowers – Glugginn Gestófíll: Teitur Magnússon Fílalag grefur í gullkistu sína að þessu sinni og töfrar fram eina af sínum fyrstu fílunum. Um er að ræða fílun á Glugganum með Flowers. Lagið er samið af Rúnari Gunnarssyni forsprakka Dáta og einum besta söngvara Íslandssögunnar og Þorsteini Eggertssyni frumrokkara og hirðskáldi sexu og sjöu. Alíslenskt lag, en þó nokkuð amerískt í hljómi, enda voru geysilega margar Wrigleys-stangir leðraðar niður að minturót við samningu og upptöku þess. Glugginn felur í sér frumdaga íslensks kúls. Þegar menn eins og Jónas R. gengu um í pelsum og voru töff. Og fílun á laginu felur einnig í sér árdaga lagafílunar. Hér eru Ebbi og Snorri mættir, ásamt Teiti Magnússyni, sem hrærir í fjölskynjunarpotti sínum og galdrar fram ófyrirséðar hliðar Gluggans.

Om Podcasten

Fílalag er hlaðvarp um tónlist. Á hverjum föstudegi senda þeir Snorri Helgason og Bergur Ebbi frá sér nýjan þátt þar sem dægurlag er tekið fyrir og fílað í ræmur. Í fíluninni felst að greina menningarleg fyrirbæri sem eru kynnt í laginu, tískustrauma í hljómi og tíðaranda í framsetningu. Farið er um víðan völl og fjallar þátturinn um poppmenningu í stærra samhengi. Um málið er ekkert meira að segja. Fílið þetta bara og fokk svo off.