I’m Sleeping My Day Away – Einbeittur brotavilji

D.A.D. – I’m Sleeping My Day Away Sporðdreki hríslast eftir maga á konu með mjótt mitti. Þurrt eyðimerkurlandslag. Smokkar. Rauður Winston á náttborði. Hríslandi kögur á ljótum leðurjakka. Danir í húsbát súpa á náttúruvíni. Fólk á Akranesi skaddar sig. Leðurblökur undir þakskyggni í Perth í Ástralíu. Í myrkrinu eru glyrnur.Mikki Mús liggur í valnum. Skorinn á háls bak við kandífloss-stand. Bambi stendur stjarfur í bílljósunum. Þeir eru komnir. Úthvíldir danskir skrattar. Og þeir ætla að fremja ógeðsleg myrkaverk.

Om Podcasten

Fílalag er hlaðvarp um tónlist. Á hverjum föstudegi senda þeir Snorri Helgason og Bergur Ebbi frá sér nýjan þátt þar sem dægurlag er tekið fyrir og fílað í ræmur. Í fíluninni felst að greina menningarleg fyrirbæri sem eru kynnt í laginu, tískustrauma í hljómi og tíðaranda í framsetningu. Farið er um víðan völl og fjallar þátturinn um poppmenningu í stærra samhengi. Um málið er ekkert meira að segja. Fílið þetta bara og fokk svo off.