Jóga – Litbrigði jarðarinnar

Björk – Jóga Stærsta poppstjarna Íslands fyrr og síðar er tekin fyrir í dag. Snúðarnir, hvíta dúnúlpan, textúrinn, vefnaðurinn. Ferill Bjarkar er fínofinn og verður aldrei greindur til hlítar, en sumir þræðir eru meira áberandi en aðrir. Björk er útpæld, verk hennar eru gagnrýnendakonfekt og tengsl hennar við stór þemu eins og umhverfisvernd og frelsisbaráttu þjóða og einstaklinga eru aðdáunarverð. En við skulum aldrei gleyma að fíla hana líka, fíla músíkina og lýríkina án þess að ofhugsa hana of mikið. Björk, stóra, sú einstaka, sú einbeitta. Dýrust kveðnasta Liljan. Við fílum hana.

Om Podcasten

Fílalag er hlaðvarp um tónlist. Á hverjum föstudegi senda þeir Snorri Helgason og Bergur Ebbi frá sér nýjan þátt þar sem dægurlag er tekið fyrir og fílað í ræmur. Í fíluninni felst að greina menningarleg fyrirbæri sem eru kynnt í laginu, tískustrauma í hljómi og tíðaranda í framsetningu. Farið er um víðan völl og fjallar þátturinn um poppmenningu í stærra samhengi. Um málið er ekkert meira að segja. Fílið þetta bara og fokk svo off.