Marquee Moon – Glorhungur í myrkur og norp

Television – Marquee Moon Þá er það East-Village Fokkjú baugasnilld í boði ameríska frumpönksins. Undir nálinni er Television. Önnur eins leðurjakka tyggjó slumma hefur aldrei verið tekin upp eins og fyrsta platan með þessu póetíska gítarglamrandi braki.  Television er grímulaus ásókn í fegurðarskaðræði. Til að fegurð ljóssins sjáist þarf einnig að fíla skuggana. Television teygir sig langt eftir hinu skyggða. Hér er um að ræða lakkríssvartan kadilakk sem fossast ofan í svarbrúna mold. Fílið þetta og dettið svo niður, glorhungruð og beygð, geislavirku rotturnar sem þið eruð.

Om Podcasten

Fílalag er hlaðvarp um tónlist. Á hverjum föstudegi senda þeir Snorri Helgason og Bergur Ebbi frá sér nýjan þátt þar sem dægurlag er tekið fyrir og fílað í ræmur. Í fíluninni felst að greina menningarleg fyrirbæri sem eru kynnt í laginu, tískustrauma í hljómi og tíðaranda í framsetningu. Farið er um víðan völl og fjallar þátturinn um poppmenningu í stærra samhengi. Um málið er ekkert meira að segja. Fílið þetta bara og fokk svo off.