Mellow Yellow – Gamli gulur

Donovan – Yellow Mellow Pottlok á höfði. Graður Skoti horfir til Austursins og sigrar Vestrið. Frasabók sexunnar klár í vasa. Allir slakir, gulir og gíraðir. Stælarnir í hámarki. Aðdróttanir, bananar, víðar skyrtur.Skyldufílun á gamla gula.

Om Podcasten

Fílalag er hlaðvarp um tónlist. Á hverjum föstudegi senda þeir Snorri Helgason og Bergur Ebbi frá sér nýjan þátt þar sem dægurlag er tekið fyrir og fílað í ræmur. Í fíluninni felst að greina menningarleg fyrirbæri sem eru kynnt í laginu, tískustrauma í hljómi og tíðaranda í framsetningu. Farið er um víðan völl og fjallar þátturinn um poppmenningu í stærra samhengi. Um málið er ekkert meira að segja. Fílið þetta bara og fokk svo off.