One Headlight – Glætan og myrkrið

The Wallflowers – One Headlight Ég veit hvað þú gerðir síðasta sumar. Þú keyrðir yfir brúna hjá sýslumörkunum á einni lukt og bjúikkinn hvarf inn í myrkrið. Það komast ekki allir á Kirkjugarðsballið í haust sem ætluðu þangað í vor. Maísakurinn. Bregðuruslið. Sætir unglingar leiknir af þrítugum alkóhólistum. Hörð ljós níunnar. Ein lukt. Beint í andlitið, beint í grímuna, beint í meitlað spjaldið. Múltí-platína. Gubbað í fötu. Kjálkar, haka, nef, augu. Rokkið er í andaslitrunum. Það var í andaslitrunum 1957, 1967, 1977, 1987 og 1997. Og alltaf var því bjargað af dreamy drulluhala með telecaster. Addams-fjölskyldan. Yfirgefnar timburhallir. Lakkaðar líkkistur. Djúplakkaðar, póleraðar, valhnotuhirslur. Upplausn hugmynda. Endurfæðing. Bestun. Þorgeir Ástvaldsson með hvíta hanska.  Heisið, meisið, þykknið, myrkrið. Skaðræði, ofbeldi. Ameríka. Ein lukt er allt sem þarf.

Om Podcasten

Fílalag er hlaðvarp um tónlist. Á hverjum föstudegi senda þeir Snorri Helgason og Bergur Ebbi frá sér nýjan þátt þar sem dægurlag er tekið fyrir og fílað í ræmur. Í fíluninni felst að greina menningarleg fyrirbæri sem eru kynnt í laginu, tískustrauma í hljómi og tíðaranda í framsetningu. Farið er um víðan völl og fjallar þátturinn um poppmenningu í stærra samhengi. Um málið er ekkert meira að segja. Fílið þetta bara og fokk svo off.