Stanslaust stuð – Glimmer á lifrapylsu

Páll Óskar – Stanslaust stuð Þá kom loksins að því. Páll Óskar, maður fólksins, var fílaður í strimla frammi fyrir lýðnum. Ekkert passar betur fyrir Palla-fílun en múgur og margmenni. Músík Páls Óskars er músík fólksins. Sá Íslendingur sem ekki hefur maukfílað Palla er með ruslafötu í stað hjarta. Palli breytti Íslandi. Hann setti glimmer á lifrapylsuna. Ef ekki væri fyrir hann þá væri Ísland fábreytilegra, fordómafyllra og leiðinlegra. Við værum öll fátækari. Í þættinum er farið hratt yfir sögu en þó af miklum ákafa. Ferill Palla er langur og þar er margt býsna óvænt að finna. Svo er athyglinni beint að laginu góða og hinu íslenska “stuði”, sem er margslungið og merkilegt fyrirbæri.

Om Podcasten

Fílalag er hlaðvarp um tónlist. Á hverjum föstudegi senda þeir Snorri Helgason og Bergur Ebbi frá sér nýjan þátt þar sem dægurlag er tekið fyrir og fílað í ræmur. Í fíluninni felst að greina menningarleg fyrirbæri sem eru kynnt í laginu, tískustrauma í hljómi og tíðaranda í framsetningu. Farið er um víðan völl og fjallar þátturinn um poppmenningu í stærra samhengi. Um málið er ekkert meira að segja. Fílið þetta bara og fokk svo off.