Superstar – Hvítar tennur, brúnt leður

Carpenters – Superstar Trésmiðurinn brúnast í sólinni. Leðurólar Jésú-sandalanna herpast um svitastorkna ökkla. Það húmar að. Raðmorðingjamyrkur skellur á. Vaktmaður Golfklúbbsins er skorinn á háls. Það er há-sjöa. Sjálvirkir vatnsúðarar spreyja út í nóttina. Súperstjarnan skín á himni.

Om Podcasten

Fílalag er hlaðvarp um tónlist. Á hverjum föstudegi senda þeir Snorri Helgason og Bergur Ebbi frá sér nýjan þátt þar sem dægurlag er tekið fyrir og fílað í ræmur. Í fíluninni felst að greina menningarleg fyrirbæri sem eru kynnt í laginu, tískustrauma í hljómi og tíðaranda í framsetningu. Farið er um víðan völl og fjallar þátturinn um poppmenningu í stærra samhengi. Um málið er ekkert meira að segja. Fílið þetta bara og fokk svo off.