Þáttur 87 - Efnahagsspjall við Konráð Guðjóns

Í þessum þætti er rætt við Konráð Guðjónsson hagfræðing. Rætt er um efnahagshorfur hér heima og erlendis, ríkisfjármálin, kjarasamningana, fasteignamarkaðinn og fleira. Þá er farið yfir spurningar frá hlustendum þar sem meðal annars er komið inn á hans sýn á mögulegan samruna Arion og Íslandsbanka. Léttu nóturnar eru á sínum stað.---------Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid

Om Podcasten

Fjármálakastið er hlaðvarp fyrir áhugafólk um fjármál, hagfræði og efnahagsmál. Í þættinum er rætt við fólk frá ýmsum áttum um efnahagsmál. Þættirnir koma út einu sinni í viku inn á allar helstu hlaðvarpsveitur og inn á podcast.is. Umsjónarmaður þáttarins er Magdalena Anna Torfadóttir.