Trúir þú á jólasveina?

Adeline Brynja tengist ömmu sinni Adeline sem er komin til landsins frá Bahamas og gleðst yfir fleiri leikfélögum. Hún tekur þroskastökk og er farin að bragða graut rétt tæplega 4 mánaða og er líka á leiðinni í sund í fyrsta skipti, það gerist margt í lífi lítillar stúlku. Ömmgurnar ræddu um jólasveinana, þeirra tilvist og trú barna. Börn á ákveðnum aldrei eiga það til að efast um tilvist sveinanna en Magga Pála bendir réttilega á að við höfum fæst séð útvarpsbylgjur, internet eða Guð....

Om Podcasten

Margrét Pála og Móey Pála spjalla saman um fjölskylduna ehf, heimilislíf, uppeldi og er ekkert mannlegt óviðkomandi í þessu einlæga og skemmtilega hlaðvarpi. Fleiri fjölskyldumeðlimir kveða sér líka hljóðs enda er um Fjölskylduna ehf. að ræða. Margrét Pála setur sig í stellingar sem amma, senn langaamma og fær dótturdóttirin Móey Pála tækifæri til að spyrja ömmu um allt sem verðandi mæður velta fyrir sér 😊 Þær hafa kallað sig ömmgur (amma og dótturdóttir) frá því Móey var lítil stúlka en þær hafa alla tíð átt afar sterkt og sérstakt samband. Hlustendur fá einnig einstakt tækifæri til að kynnast því og fylgja meðgöngu Móeyjar og öllu sem fylgir þessu hamingjuríka og í senn krefjandi hlutverki; foreldrahlutverkinu! Margrét Pála, eða Magga Pála eins og hún er landsmönnum kunn, er frumkvöðull í menntamálum á Íslandi, höfundur Hjallastefnunnar og ötull talsmaður barna. Hún brennur fyrir uppeldi sem og Móey Pála, dótturdóttir hennar, en hún er uppeldis- og menntunarfræðingur.Tónlistarstef þáttarins er eftir Valgeir Guðjónsson og þættirnir eru teknir upp í stúdíó Lubba Peace undir stjórn Inga Þórs Ingibergssonar.